Tilhögun þingfundar

Mánudaginn 23. febrúar 2004, kl. 15:51:38 (4493)

2004-02-23 15:51:38# 130. lþ. 69.96 fundur 349#B tilhögun þingfundar#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 130. lþ.

[15:51]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 23. febr. 2004:

,,Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs óskar eftir því, sbr. 3. mgr. 55. gr. þingskapa, að ræðutími við 1. umr. í 564. máli, Verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu, verði tvöfaldaður vegna mikilvægis málsins.``

Undir bréfið ritar Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs.

Við þessari beiðni verður orðið.