Verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu

Mánudaginn 23. febrúar 2004, kl. 18:53:39 (4518)

2004-02-23 18:53:39# 130. lþ. 69.18 fundur 564. mál: #A verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu# (heildarlög) frv., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur, 130. lþ.

[18:53]

Halldór Blöndal (andsvar):

Frú forseti. Ég vil vekja athygli hv. 10. þm. Norðvest., Sigurjóns Þórðarsonar, á því hvaða mál er hér til umræðu, frv. til laga um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu. Þetta sýnir ljóslega að við leggjum upp úr því að það séu ströng ákvæði um það hvernig menn umgangast landið þar í kring.