Magnús Þór Hafsteinsson:
Herra forseti. Hv. þm. Jón Gunnarsson nefndi áðan að við værum með fiskveiðistjórnarkerfi sem byggði á hafrannsóknum að við teldum. Það er ekki rétt nema að litlum hluta. Við erum með fiskveiðistjórnarkerfi sem byggir á fisktalningu. Mjög stór og allt of stór hluti af starfsemi Hafrannsóknastofnunar snýst um það að telja fiska, bæði þá fiska sem búið er að veiða og landa og líka óveidda fiska í sjónum. Menn telja og telja allt árið um kring og svo telja þeir vitlaust. Og hvað gerum við þá?
Því miður eru dæmi um það, allt of mörg dæmi um það á undanförnum árum, herra forseti, að við höfum séð að Hafrannsóknastofnun hefur ,,búmmað`` allalvarlega á stofnstærðaráætlunum sínum. Við höfum þorskinn, ýsuna, skötuselinn og kolmunnann, bara svo nokkur dæmi séu nefnd.
Ég tel að við séum að forgangsraða vitlaust. Við þurfum að breyta allri forgangsröðun í hafrannsóknum við Ísland. Við þurfum að minnka það að reyna að telja fiska til þess að reyna að fullnægja kvótakerfinu. Við þurfum að auka vistfræðirannsóknir í hafinu hér við land. Það á að vera okkar helsti forgangur.
Að sjálfsögðu eyðum við allt of litlum peningum í hafrannsóknir. Fyrir nokkrum árum gerði ég úttekt á þessu. Mig minnir að við Íslendingar eyddum um 1,5% af útflutningstekjum okkar af sjávarútvegi í hafrannsóknir og þá á ég við hafrannsóknir, ekki fiskeldisrannsóknir. Norðmenn, nágrannar okkar, eyddu rúmum 3% af útflutningstekjum af sjávarútvegi í hafrannsóknir.
Norsku skipin til dæmis --- við Íslendingar erum mjög hrifnir af því oft að bera okkur saman við aðrar þjóðir, ég gáði að þessu áðan í ársskýrslu norsku hafrannsóknastofnunarinnar --- eru alls sjö og voru gerð út í fyrra í 270--320 daga hvert skip. Þar er alvöruúthald á hafrannsóknarskipunum.
Það gengur náttúrlega ekki á Íslandi að við séum að reka þessi dýru skip aðeins tvo til sex, sjö, í mesta lagi átta mánuði á ári með þetta hafsvæði og öll þau verkefni sem bíða okkar, veiðarfærarannsóknir, umhverfisrannsóknir, rannsóknir á vistkerfi sjávar. Þetta hreinlega gengur ekki. Við þurfum að forgangsraða upp á nýtt og við þurfum að setja meiri peninga í þessar mikilvægu rannsóknir.