Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Frú forseti. Ég hef fyrst og fremst borið fyrir mig það sem fyrir liggur. Staðreyndir í þessu máli. Ég þarf ekki á neinu öðru að halda. Ég vitnaði í samþykkt stjórnar Landeigendafélags Laxár og Mývatns. Ég vitnaði í ályktun Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi og skoðanir fleiri umhverfisverndarsamtaka, fuglaverndunarsamtaka, samtaka stangveiðimanna o.s.frv. Hv. þm. getur kynnt sér þetta eins og aðrir ef hann hefur áhuga á, þetta liggur allt saman fyrir. Ég geri ráð fyrir að hv. þm. hafi einnig lesið blaðagreinar sem birst hafa allmargar nú á síðustu mánuðum í framhaldi af því að þetta mál fór á flot.
Mér er vel kunnugt að það er að sjálfsögðu ekki algjör samstaða og algjör einhugur um afstöðu í þessu máli að svo miklu leyti sem mönnum eru áformin kunnug og þau hafa þegar verið rædd eða menn tekið afstöðu til þeirra. Fyrst og fremst gildir það um hóp landeigenda og veiðiréttarhafa á svæðinu. Þeir hafa eðli málsins samkvæmt fylgst meira með þessu en aðrir og ég veit að í þeim hópi eru eitthvað skiptar skoðanir, skárra væri það nú. En ég held við höfum ekki leyfi til annars en taka fullt mark á því þegar samtök þeirra sem í hlut eiga, þ.e. bæði réttkjörin stjórn Landeigendafélags Laxár og Mývatns, sem er hagsmunagæsluaðili, heildarsamtök landeigenda á þessu svæði, og þegar veiðiréttarhafar eins og í veiðifélögum Laxár og Mývatns og Krákár, og aðrir slíkir aðilar, hafa tjáð sig með formlegum hætti. Það sem gildir í raun sem afstaða þeirra, er það ekki? Sú afstaða liggur fyrir.
Mér er í sjálfu sér alveg sama hvernig hv. þm. Halldór Blöndal reynir að gera mér upp skoðanir eða leggja mér orð í munn. Ég tel mig ekki hafa talað hér fyrir hönd annarra eða með öðrum hætti en þeim sem fullkomlega eru innstæður fyrir. Ég stend við það sem ég hef sagt. Mér er vel kunnugt um það og þykist vita að hv. þm. Halldóri Blöndal sé það einnig, að það er ekkert annað en ófriðarefni að ganga fram í málinu eins og hér er lagt til í frumvarpsformi.