Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka jákvæðar undirtektir hv. þm. við þetta frv. Ég er sannfærð um, herra forseti, að ef frv. hefði náð fram að ganga á árinu 1994 eða 1995 eins og hv. þm. taldi upp þá hefði það orðið til þess að bjarga mörgum heimilum frá gjaldþroti sem hafa lent í gjaldþroti á undanförnum árum.
Hv. þm. spyr um skýringu. Ég hygg að hv. þm. þekki skýringuna eins vel og ég. Það er þannig, eins og við höfum rakið í málunum sem voru til umræðu hér á undan, að það er afar mikil tregða hjá stjórnarliðunum við að afgreiða mál frá stjórnarandstöðunni. Það er sama hve góð mál það eru og hversu brýnt er að þau nái fram að ganga, hversu mikil þjóðþrifamál það eru og til hagsbóta fyrir almenning í landinu. Jafnvel þó að þau kosti ríkissjóð ekki neitt eins og þetta mál þá eru þau stöðvuð í nefnd og söltuð.
Yfirleitt fá mál stjórnarandstöðunnar litla sem enga umfjöllun, einungis leitað umsagna um þau en ekki einu sinni gerð tilraun, af hálfu stjórnarliða, til að setjast yfir þau með stjórnarandstöðunni til að reyna að ná samkomulagi ef vera skyldu einhverjar breytingar sem stjórnarliðar vildu gera. Við höfum ávallt verið opin fyrir því ef stjórnarliðar sýna viðleitni í þá átt að setjast yfir mál með okkur til að ná samkomulagi um breytingar á þeim frumvörpum sem við höfum flutt. En það ber sjaldnast við.
Ég held að við í stjórnarandstöðunni verðum að leggja saman í þessu máli til að það nái fram að ganga. Ég þakka fyrir stuðning hv. þm. í því efni.