Varnir gegn dýrasjúkdómum

Miðvikudaginn 25. febrúar 2004, kl. 13:43:21 (4611)

2004-02-25 13:43:21# 130. lþ. 71.91 fundur 354#B varnir gegn dýrasjúkdómum# (aths. um störf þingsins), GAK
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 130. lþ.

[13:43]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir að vekja athygli á málinu í hv. Alþingi og einnig fyrir viðbrögð hans. Ég er honum sammála um að við eigum að standa vörð um íslenska landbúnaðarframleiðslu og hreinleika hennar og megum ekki taka neina áhættu í því máli og okkur ber að verjast eins og lög og reglur heimila.

Það er hárrétt hjá hæstv. landbrh. að okkur ber líka að vara ferðamenn við. Hæstv. landbrh. hefur reynslu af því frá Kína og rétt að ítreka það að menn geta borið með sér sjúkdóma.