Fátækt

Mánudaginn 01. mars 2004, kl. 15:07:54 (4666)

2004-03-01 15:07:54# 130. lþ. 73.1 fundur 362#B fátækt# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 130. lþ.

[15:07]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Frú forseti. Þessi skýrsla, eða drögin, hefur ekki verið lögð fyrir ríkisstjórnina og ég hef reyndar ekki lesið þau drög sjálfur heldur, en mér er kunnugt um að lokafrágangur stendur yfir af hálfu nefndarmanna. Það hefur eitt og annað orðið til þess að tefja það en ég vona að það tefjist ekki úr hömlu héðan í frá. Af framangreindum ástæðum get ég ekki farið yfir einstök efnisatriði eða tillögur skýrslunnar.