Heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu

Þriðjudaginn 02. mars 2004, kl. 13:59:46 (4736)

2004-03-02 13:59:46# 130. lþ. 74.94 fundur 374#B heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu# (umræður utan dagskrár), ÁÓÁ
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur, 130. lþ.

[13:59]

Ágúst Ólafur Ágústsson:

Frú forseti. Þingflokkur Samf. hefur lýst miklum áhyggjum af þeirri óvissu sem nú ríkir um heimahjúkrun. Þessi deila, ásamt ýmsum öðrum aðgerðum í heilbrigðisþjónustunni undanfarna mánuði, endurspeglar bæði óraunhæfar hugmyndir um fjárþörf í grunnþjónustu og skort á pólitískri forgangsröðun. Að sjálfsögðu þurfa aðilar máls að vera opnir fyrir nýjum leiðum til að hagræða og bæta þjónustuna svo fremi sem kjör þeirra séu tryggð. Þessi deila snýst hins vegar að stærstum hluta um áhugaleysi íslenskra stjórnvalda um vanda heilbrigðisþjónustunnar. Deilan snýst einnig um skort á framtíðarsýn. Slík sýn fyrirfinnst einfaldlega ekki hjá ríkisstjórnarflokkunum.

[14:00]

Það er alveg með ólíkindum að núverandi ríkisstjórn sé svo treg til að beita úrræðum sem eru bæði ódýrari og hentugri fyrir alla aðila. Þessi tregða á við heimahjúkrun, uppbyggingu hjúkrunarheimila og eflingu heilsugæslunnar. Við stöndum langt að baki nágrannaþjóðum okkar í heimahjúkrun og í Reykjavík eru allt að 20 þús. manns án heilsugæslu.

Nú liggja á annað hundrað einstaklingar á rándýru hátæknisjúkrahúsi sem vel gætu nýtt sér önnur úrræði, svo sem heimahjúkrun eða hjúkrunarheimili, stæðu þau til boða. Svo er hins vegar ekki. Það á að vera pólitískt markmið að fólk geti forðast sjúkrahúsvist en notað þess í stað önnur úrræði heilbrigðiskerfis. Við eigum að efla heimahjúkrun og gera fólki kleift að vera eins lengi heima hjá sér og það getur. Það er bæði ódýrara og betra. Hver króna sem er varið í heimahjúkrun skilar sér margfalt til baka. Heimahjúkrun leiðir af sér sparnað í heilbrigðiskerfinu og hagfræðin hér að baki er mjög einföld. Slík hugmyndafræði finnst hins vegar ekki hjá ríkisstjórninni og því miður virðist hinn pólitíski vilji alls ekki vera til staðar hjá ríkisstjórninni til að leysa þetta mál farsællega eða taka á öðrum vanda heilbrigðiskerfisins. Á meðan opnast sár hér og þar í kerfinu sem sýking á greiða leið að.