Margrét Frímannsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég vil taka fram, af því að undir nál. skrifar aðeins einn hv. þm. Samf., Guðrún Ögmundsdóttir, að hv. þm. Ágúst Ólafur Ágústsson og ég vorum fjarverandi við afgreiðslu þessa máls. Við komum hins vegar að vinnslu þess og fylgdumst með vinnu nefndarinnar. Við styðjum frv. eindregið með þeim breytingum sem lagt er til að verði gerðar.
Menn ættu orðið að þekkja málið nokkuð vel. Það er ekki að koma inn á Alþingi í fyrsta skipti. Landlæknir hefur mælt með því að það verði samþykkt með ákveðnum breytingum. Breytingartillögur nefndarinnar miða að því að taka til greina flestar ábendingar sem frá landlækni komu. Reiknað er með því að við setningu reglugerðar ráðherra, sem heimili sjóntækjafræðingum að mæla sjón og fullvinna gleraugu og snertilinsur, verði farið vel yfir þær athugasemdir sem bárust. Við hvetjum til þess að vandað verði til verka við setningu reglugerðarinnar.
En ég vildi aðeins láta koma fram að við hv. þm. Samf., Ágúst Ólafur Ágústsson og sú sem hér stendur, styðjum frv. með breytingum.