Birkir J. Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. fyrirspyrjanda Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir fyrirspurnina. Í ljós hefur komið að ríkisstjórnin hefur á síðustu árum náð ótrúlegum árangri í uppbyggingu vegakerfisins hringinn í kringum landið, rétt eins og á svo mörgum öðrum sviðum þjóðfélagsins. Ég vil halda því til haga í umræðunni að ef við viljum halda úti öflugri byggðastefnu og viljum virkilega halda landinu í byggð verðum við að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið, því auknar og bættar samgöngur eru trúlega einn stærsti þátturinn í öflugri byggðastefnu.
Ég vil nefna eitt mál sem mundi tengja landsbyggðina og höfuðborgarsvæðið mjög vel saman og það er lega Sundabrautar sem mundi stytta leiðina frá Norðurlandi suður til Reykjavíkur um korter til tuttugu mínútur að ég tel. Það er því málefni sem þingmenn höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar geta sameinast um að verði að veruleika. Ég tel að við eigum að halda áfram á þeirri braut sem við höfum markað. Ég held að peningum sé mjög vel varið í uppbyggingu vegakerfisins.