Afnotagjöld Ríkisútvarpsins

Miðvikudaginn 03. mars 2004, kl. 15:45:28 (4862)

2004-03-03 15:45:28# 130. lþ. 76.5 fundur 581. mál: #A afnotagjöld Ríkisútvarpsins# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., JKÓ
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 130. lþ.

[15:45]

Jón Kr. Óskarsson:

Hæstv. forseti. Mig langar að minnast á eitt atriði sem ekki hefur verið minnst á hér. Það er öryggisatriði útvarpsins. Ég var loftskeytamaður í yfir 40 ár og í gosinu 1973 var ég loftskeytamaður í Vestmannaeyjum. Þá skildi ég hvers útvarpið var megnugt. Ég held að við megum aldrei vanmeta það sjónarmið hvað Ríkisútvarpið er mikill öryggisventill fyrir íslenska þjóð.