Breyttar áherslur dómsmálaráðherra í lögreglumálum

Fimmtudaginn 04. mars 2004, kl. 10:38:51 (4879)

2004-03-04 10:38:51# 130. lþ. 77.94 fundur 384#B breyttar áherslur dómsmálaráðherra í lögreglumálum# (umræður utan dagskrár), dómsmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 130. lþ.

[10:38]

Dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Ögmundi Jónassyni fyrir að beita sér fyrir umræðu á Alþingi um þetta mikilvæga mál. Ég tek undir með honum að nauðsynlegt er að gera sér vel grein fyrir kostnaðarhlið löggæslu. Eins og fram kemur í gögnum dómsmrn. er gert ráð fyrir að það muni kosta 250 millj. kr. á ári að fjölga í sérsveit lögreglunnar. Um þann þátt ber að ræða við afgreiðslu fjárlaga og er með öllu ástæðulaust að láta eins og farið sé á svig við Alþingi í því efni.

Í ræðu sem ég flutti við slit Lögregluskólans 11. desember sl. lét ég þess getið að ég teldi nauðsynlegt að efla sérsveit lögreglunnar til að treysta öryggi hins almenna lögreglumanns og þar með almennt öryggi í landinu. Vitnað var í þessi orð mín í fjölmiðlum en enginn sá ástæðu til að spyrja mig nánar út í þau á Alþingi. Síðan hefur verið unnið að því á vegum dómsmrn., embættis ríkislögreglustjóra og lögreglunnar í Reykjavík, þar sem flestir sérsveitarmenn hafa starfað til þessa, að móta leiðir til að efla sérsveitina. Að bestu manna yfirsýn og í góðri sátt allra sem að málinu hafa komið á vettvangi lögreglunnar og að höfðu samráði við forustumenn Landssambands lögreglumanna og Lögreglufélags Reykjavíkur var ákveðið að fara þá leið sem ég kynnti 1. mars. Hún er í meginatriðum tvíþætt.

Í fyrsta lagi verður sérsveitin stoðdeild á vegum ríkislögreglustjóra við lögreglusveitir um land allt. Í öðru lagi er almenn löggæsla efld.

Eldri skipan sérsveitarmála hefur komið niður á almennri löggæslu. Sérsveitarmennirnir voru fram til síðustu mánaðamóta hluti af almennri deild lögreglunnar í Reykjavík. Við sérsveitarverkefni eða þjálfun og æfingar innan sveitarinnar nýttust þessir menn ekki til almennra löggæslustarfa. Nú hefur það ekki áhrif á skipulag almennrar löggæslu að sérsveitin er kölluð til starfa í þjálfun eða önnur verkefni enda verður lögreglumönnum í Reykjavík fjölgað til að mæta þessum tilflutningi. Þetta er kjarni þeirra breytinga sem hér er um að ræða. Þær byggjast á lögreglulögum og til þeirra sækir sérsveitin heimildir sínar. Ég tel ekki nauðsynlegt að breyta þeim lögum vegna þessara skipulagsbreytinga.

Hv. þm. dregur allt of víðtækar ályktanir af þessum breytingum í spurningum sínum. Markmið mitt er að styrkja innviði lögreglunnar innan þess lagaramma sem henni er settur. Ég skorast hins vegar síður en svo undan því að ræða málið á þeim forsendum sem fram koma í spurningum hv. þm.

Aðgangur almennings að upplýsingum um sérsveitina breytist ekkert við þessa skipulagsbreytingu, hann er hinn sami og áður. Þessi breyting hefur engin áhrif á upplýsingaöflun um borgarana. Sé vilji til að auka hana verður að fara aðrar leiðir en að efla sérsveit lögreglunnar. Að gera sérsveitina að stoðdeild við almennt lögreglustarf í landinu eykur ekki miðstýringu því að sérsveitarmenn við lögreglustörf falla undir stjórn þess sem stýrir slíkum störfum á þeim stað þar sem þau eru unnin hverju sinni. Almenn löggæsla styrkist við þessa aðgerð.

Ég tel að það fari saman að styrkja almennt starfsumhverfi lögreglunnar og auka hlut hennar við forvarnir og almenna löggæslu. Um land allt starfar lögreglan í nánum tengslum við borgarana.

Þessi ráðstöfun sem ég hef beitt mér fyrir með samþykki ríkisstjórnarinnar lýtur ekki að því að stofna íslenskan her.

Virðulegi forseti. Við búum við síbreytilegar aðstæður og því miður steðja nýjar hættur að íslensku þjóðfélagi. Þegar ég hreyfði því í desember að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina höfðu vopnaðir menn farið ránshendi á höfuðborgarsvæðinu. Á Alþingi hefur hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir lagt fyrir mig fyrirspurn um ofbeldi í fíkniefnaheiminum þar sem m.a. er vikið að síendurteknum árásum handrukkara og spurt hvort lögregluyfirvöld telji sig nægileg vel í stakk búin til að takast á við sívaxandi ofbeldi í fíkniefnaheiminum og hvað sé vænlegast til úrbóta. Þær spurningar hv. þm. snúast um raunveruleg viðfangsefni líðandi stundar. Við þeim viðfangsefnum verður að bregðast af festu og þunga og í því ljósi á að skoða ákvarðanir mínar um að efla sérsveit lögreglunnar.

Ég vona að hv. alþingismenn séu mér sammála um nauðsyn þess að gera skipulegar ráðstafanir til að sporna við ofbeldi sem ógnar öryggi hins almenna borgara. Ég hafna þeirri skoðun að slíkar ráðstafanir séu til þess fallnar að veikja traust á lögreglunni eða spilla samskiptum hennar við almenning.