Nýbygging við Landspítala -- háskólasjúkrahús

Fimmtudaginn 04. mars 2004, kl. 15:44:12 (4932)

2004-03-04 15:44:12# 130. lþ. 77.6 fundur 542. mál: #A nýbygging við Landspítala -- háskólasjúkrahús# þál., GAK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 130. lþ.

[15:44]

Guðjón A. Kristjánsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel að hér sé hreyft ákaflega þörfu máli til úrvinnslu og athugunar. Mér sýnist hins vegar óþarft að hafa þann fyrirvara á að nefndin skili ekki áfangaáliti fyrr en 1. janúar 2006. Ég vil spyrja hvort ekki væri eðlilegt að nefndin gæfi einhverjar vísbendingar um hvað hún teldi hagkvæmast í þessu máli varðandi byggingu við Landspítala -- háskólasjúkrahús við Hringbraut fyrr en 1. janúar 2006. Ég geri þá athugasemd, hæstv. forseti.