Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Mánudaginn 08. mars 2004, kl. 17:43:49 (5000)

2004-03-08 17:43:49# 130. lþ. 78.10 fundur 683. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# (metangas og rafmagn) frv., JÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur, 130. lþ.

[17:43]

Jóhann Ársælsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég fagna því út af fyrir sig að hæstv. ráðherra er ákveðinn í því að tryggja framgang þessa máls. Það er náttúrlega orðið með miklum undarlegheitum að menn skuli ekki vera búnir að finna botninn í það mál eftir allan þennan tíma og eftir alla þessa miklu umfjöllun. Maður verður þá satt að segja að binda von við það sem hæstv. ráðherra segir að nú séu menn komnir það nálægt niðurstöðunni að málinu verði dreift sem fyrst í þinginu því það gengur á tímann. Ég geri ráð fyrir því vegna þess hversu vandasamt málið hefur verið fram að þessu að það taki einhvern tíma að klára það í nefnd í framhaldi af því að það verði lagt hér fram til umræðu. En ekki meira um það.