Bryndís Hlöðversdóttir (andsvar):
Frú forseti. Ég held að það verði að virða mér og fleirum sem hér hafa talað það til vorkunnar að skilja ekki stefnu Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs í Evrópumálum. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon formaður þess stjórnmálaflokks hefur nú talað og hver er stefna þess flokks í Evrópumálum?
Hv. formaður flokksins var á móti EES-samningnum og hann staðfesti það hér í umræðunum að hann væri enn á móti samningnum, eins og ég skildi hann. Samningurinn er með öðrum orðum slæmur og það var rétt að vera á móti honum. Eigi að síður byggir sá ágæti flokkur stefnu sína í Evrópumálum að miklu leyti á þessum vonda samningi. En svona til þess að bíta höfuðið af skömminni ætlar Vinstri hreyfingin -- grænt framboð að byggja á tvíhliða samningi ef það skyldi vera rétt að það væri að fljóta undan EES-samningnum eins og margir hafa bent á. Bara þróunin sem virðist vera að eiga sér stað í Noregi getur t.d. bent til þess og ég veit að hæstv. utanrrh. hefur líka sjálfur staðfest að ekki sé þess að vænta að hægt verði að uppfæra þennan samning. Ég verð að spyrja hv. þm. hvað hann telji styðja það að það sé yfirleitt raunhæfur möguleiki að byggja á slíkum tvíhliða samningi ef undan þessum slæma samningi flæðir sem Vinstri hreyfingin -- grænt framboð byggir Evrópustefnu sína á. Við skulum ímynda okkur þá atburðarás að t.d. Noregur sækti um aðild að Evrópusambandinu. Þar hefur þróunin verið slík að vel gæti hugsast að það mundi gerast á næstu árum. Telur hv. þm. þá möguleika á að byggja á þessum samningi og telur hv. þm. raunhæfan möguleika á því að hægt sé að fá tvíhliða samning við Evrópusambandið þegar flestir eru orðnir úrkula vonar um að hægt sé að uppfæra þennan samning eins og hann liggur fyrir?