Lokuð öryggisdeild

Miðvikudaginn 10. mars 2004, kl. 15:02:15 (5120)

2004-03-10 15:02:15# 130. lþ. 81.5 fundur 597. mál: #A lokuð öryggisdeild# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., DrH
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 130. lþ.

[15:02]

Drífa Hjartardóttir:

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Margréti Frímannsdóttur fyrir að taka málið enn einu sinni upp í þingsal. Þetta er, eins og kom fram hjá hæstv. ráðherra, í þriðja skipti á stuttum tíma sem við ræðum þessi mál og staðan er enn óbreytt. Ég treysti því að hæstv. ráðherra ýti á eftir því að ákvörðun verði tekin. Ég legg mikla áherslu á mikilvægi þess að ekki sé verið að bæta við einni stofnuninni enn heldur að það sé nýtt sem fyrir er. Vil ég í því sambandi beina sjónum mínum að Sogni og þeirri starfsemi sem þar fer fram og það samstarf sem ætti svo sannarlega að geta verið í gegnum sjúkrahúsið á Selfossi.