Húsnæði réttargeðdeildarinnar að Sogni

Miðvikudaginn 10. mars 2004, kl. 15:16:54 (5128)

2004-03-10 15:16:54# 130. lþ. 81.6 fundur 598. mál: #A húsnæði réttargeðdeildarinnar að Sogni# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., DrH
[prenta uppsett í dálka] 81. fundur, 130. lþ.

[15:16]

Drífa Hjartardóttir:

Virðulegi forseti. Það kom reyndar aldrei fram hjá fyrirspyrjanda hvað þetta kostar mikið eða hvað þetta eru alvarlegar athugasemdir. Ég vil taka undir með hæstv. ráðherra, auðvitað þarf að kostnaðargreina vandann og gera ráð fyrir því þegar ákveðið verður hvað á að gera því að það hlýtur að skipta máli. Sem betur fer er þó farið í það hjá ríkinu að taka orðið fé frá til viðhalds og vil ég þá minna á hjúkrunarheimilið. Gert er ráð fyrir ákveðnu fjármagni núna á fjárlögum sem á að fara í viðhald á því húsnæði.