Magnús Þór Hafsteinsson:
Hæstv. forseti. Það liggur fyrir að ríkisstjórnin er komin út í nokkuð umfangsmikla bókaútgáfu. Ég ætla svo sem ekki að væla mikið út af því. Ég fagna því að góðar bækur séu gefnar út, sama hvert tilefnið er, hverjir höfundar eru og hverjir standa að útgáfu.
Ég vil þó benda á að þessi tvö bindi, Stjórnarráð Íslands I og II, hafa að því er ég best veit kostað á bilinu 50--60 millj. kr. Eins og fram kom í máli hæstv. forsrh. áðan stendur til að gefa III. bindið út 17. júní.
Mér finnst að þegar ríkið stendur í svo umfangsmikilli bókaáutgáfu ætti það að fara nýjar leiðir í að koma efninu til þeirra sem borga brúsann, þ.e. fólksins í landinu. Mér finnst því að menn ættu alvarlega að íhuga að þetta efni verði gert aðgengilegt, t.d. á internetinu og bækur eins og þessar, sem kosta núna 7 þús. kr. út úr bókabúð, þessi tvö bindi, verði seldar við vægu verði. Fólkið sem borgar brúsann fengi þá að njóta afurðanna.