Fyrirspyrjandi (Mörður Árnason):
Forseti. Ég vil eins og hv. síðasti ræðumaður þakka menntmrh. fyrir jákvæð svör og hlýjan hug. Ég get ekki annað en tekið eftir því að við virðumst vera öll þrjú nokkuð sammála um gagnsemi Reykjavíkurakademíunnar.
Ég vil hins vegar segja að ég tel eðlilegra að stofnun eins og Reykjavíkurakademían, sem er nú félag reyndar enn þá en stofnun svona í félagsfræðilegum skilningi, geri þjónustusamning við opinbera aðila, borg og ríki heldur en að hún fái þaðan beint rekstrarframlag því ekki er um það að ræða og á ekki að vera að hún verði einhvers konar opinber stofnun heldur einmitt að störf hennar í samfélagsþágu séu viðurkennd annars vegar og hins vegar að henni séu falin tiltekin verkefni á vegum hinna opinberu aðila, ríkis og auðvitað borgar líka því að Reykjavíkurakademían styrkir ekki síður menningar- og vísindastarf hér á svæðinu og þar með auðvitað allt landið.
Ég fagna því svo sérstaklega að hæstv. ráðherra skuli taka upp þessa hugmynd, sem var nú bara hugmynd mín en kannski líka fleiri, um að Reykjavíkurakademían verði háskóli á Vestfjörðum að nokkru leyti. Við náum greinilega bara saman um þetta og styrkjum menningu og vísindi hér í gegnum stofnanir eins og Reykjavíkurakademíuna.