Hálkuvarnir á þjóðvegum

Miðvikudaginn 17. mars 2004, kl. 19:03:11 (5485)

2004-03-17 19:03:11# 130. lþ. 85.18 fundur 636. mál: #A hálkuvarnir á þjóðvegum# fsp. (til munnl.) frá samgrh., SigurjÞ
[prenta uppsett í dálka] 85. fundur, 130. lþ.

[19:03]

Sigurjón Þórðarson:

Frú forseti. Ég þakka fyrir ágæt svör hjá hæstv. ráðherra en ég vil taka undir með hv. þm. Jóni Bjarnasyni varðandi það að umferðaröryggi er gríðarlegt hagsmunamál fyrir þjóðina. Við þurfum að fara að gefa þessum málaflokki aukinn gaum.

Fróðlegt væri að fá að heyra hjá hæstv. samgrh. hver kostnaðurinn er við hálkuvarnir. Hefur hann eitthvað um það? Það væri áhugavert að fá að heyra.