Guðjón A. Kristjánsson:
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka nefndarmönnum fyrir þá vinnu sem þeir hafa innt af hendi. Mér sýnist að þeir hafi bætt frv. og gert það einfaldara. Ég tek einnig undir þau sjónarmið sem komið hafa fram í umræðunni að með þeirri útfærslu sem hér er talað um varðandi markaðsverðmæti bréfa og einnig aflaheimilda, þótt skatturinn sé lækkaður niður í 5% sem er að vísu mjög lág skattprósenta en hafður í einu þrepi með þeim útfærslum sem hér eru lagðar til og gefnar hafa verið skýringar á hér, þá tel ég að sennilega séum við að stefna til þess að afla ríkissjóði meiri tekna en með frv. eins og það var áður úr garði gert. Ég held að frv. sé vel og vandlega unnið og gott að hafa það einfalt, þ.e. með eitt þrep upp á 5%. Það er svo sem hægt að velta því fyrir sér hvort nota hafi átt einhverja aðra tölu með tilliti til þess að í frv. eins og það kom inn voru bæði nefndir 5% og 10% skattstofn. Ég geri ekki athugasemdir við það og sé að í nefndarálitinu segir að áheyrnarfulltrúi okkar, hv. þm. Gunnar Örlygsson, sé álitinu samþykkur. Auðvitað geri ég engar athugasemdir við það og lít þannig á að þar hafi hann verið að lýsa yfir þeirri afstöðu okkar í þingflokknum að við mundum almennt styðja þetta mál. Ég fagna því þegar vinna tekst svo til í nefndum Alþingis að menn ná efnislega saman um útfærslur eins og hér um erfðafjárskattinn. Erfðafjárskatturinn er nokkuð sérstakt fyrirbæri. Flestallir eru nú búnir að greiða skatta alla ævi af tekjum sínum upphaflega og síðan af eignum sínum í einhverju formi. Það eru fasteignagjöld, eignarskattar og síðan fjármagnstekjuskattur ef menn hafa átt einhverja slíka reikninga o.s.frv. Mér finnst eðlilegt og sjálfsagt að hér skuli vera sett inn einhver lágmarksupphæð sem ekki er greiddur skattur af --- hún er ákveðin 1 millj. kr. og er sem sé skattfrjáls --- og að sjálfsögðu að maki þurfi ekki að greiða erfðafjárskatt.
Niðurstaða mín er sem sagt sú, hæstv. forseti, að hér hafi þokkalega tekist til og að frv. í þeim búningi sem við erum að ræða sé þarft og gott mál. Ef það reynist niðurstaðan eftir einhver ár að menn hafi farið of neðarlega með skattprósentuna í þessi 5% þá mun væntanlega myndast vilji til þess á hv. Alþingi að skoða þá prósentu. En ég held að útfærslan sem hér er lagt upp með og allir þingmenn hafa tekið undir sé góð.
Varðandi fyrirvarann sem sumir hér hafa rætt, þ.e. um líknarfélög, má velta því fyrir sér að líknarfélög verja oftast nær fjármunum sínum til ýmissa þjóðfélagslegra þarfa. Ég þekki mörg dæmi þess í íslensku þjóðfélagi að líknarfélög hafa staðið að því að styrkja þá sem minna mega sín, efla tækjakost sjúkrastofnana, vistheimila o.s.frv. þannig að það er auðvitað spurning. En þegar skatturinn er hins vegar kominn niður í 5% þá veit ég ekki hvort við eigum neitt að flækja málið með því að hafa þar undanþágur. Við eigum að sjá til hvernig þetta kemur út. Ég tel að málið sé í góðum búningi eins og það er og lýsi yfir stuðningi við það.