Frsm. allshn. (Bjarni Benediktsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá allshn. um frv. til laga um breyting á lögum um björgunarsveitir og björgunarsveitarmenn, nr. 43/2003.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Rögnu Árnadóttur og Bryndísi Helgadóttur frá dómsmálaráðuneyti. Umsagnir bárust um málið frá Lögmannafélagi Íslands, Slysavarnafélaginu Landsbjörg og Sambandi íslenskra tryggingafélaga.
Með frv. er lagt til að ákvæði 5. gr. laga um björgunarsveitir og björgunarsveitarmenn verði komið í það horf að unnt verði að kaupa vátryggingar sem ákvæðið mælir fyrir um án vandkvæða, en það þykir nú of víðtækt og almennt orðað þannig að torvelt hefur reynst að kaupa þær tryggingar sem menn eru þó skyldaðir til að taka. Þá er lagt til að bætt verði við lögin reglugerðarheimild varðandi vátryggingarskylduna.
Nefndin bendir á að rétt sé að reglugerð um vátryggingarskylduna verði samin í samráði við viðkomandi aðila til þess að tryggja að enginn ágreiningur rísi eftir að breytingin hefur verið gerð á lögunum um að vátryggingaverndin sem stefnt er að í lögunum verði hin sama og að er stefnt.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þessari athugasemd.