2004-03-23 16:53:24# 130. lþ. 88.10 fundur 482. mál: #A samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu# þál., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 88. fundur, 130. lþ.

[16:53]

Frsm. utanrmn. (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. utanrmn. á þskj. 1147. Þetta er mál nr. 482, till. til þál. um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2003.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2003 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 31. mars og 15. apríl 2003.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas H. Heiðar frá utanríkisráðuneyti, Kolbein Árnason frá sjávarútvegsráðuneyti og Friðrik J. Arngrímsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Þá hélt nefndin fund með sjávarútvegsnefnd Alþingis þar sem farið var ítarlega yfir alla efnisþætti málsins að viðstöddum fulltrúa utanrrn., sjútvrn. og Landssambands íslenskra útvegsmanna.

Í samningnum er, líkt og í samningi sömu aðila á síðasta ári, kveðið á um að færeyskum skipum sé heimilt á loðnuvertíðinni 2003--2004 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda. Þá er kveðið á um gagnkvæmar heimildir skipa hvors aðila til kolmunnaveiða innan lögsögu hins á árinu 2003 og að íslenskum skipum verði heimilt að veiða allt að 1.300 lestir af makríl og 2.000 lestir af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2003. Loks geymir samningurinn ákvæði um gagnkvæma heimild til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu hvors aðila en hér er um nýmæli að ræða.

Nefndin vekur athygli á því að áður en samningur þessi var gerður á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands var ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2003, þ.m.t. lúðu, en ákvörðun um heildarafla var tekin af sjávarútvegsráðherra á grundvelli samningsins og því er sá samningur í sjálfu sér ekki til meðferðar hér. Samningur þessi ásamt bókunum við hann var hins vegar lagður fyrir nefndina.

Í þessu sambandi vekur nefndin athygli á að samkvæmt upplýsingum sem fram komu í skriflegu svari sjávarútvegsráðherra á Alþingi í þskj. 897, mál 533, er lúðustofninn í mjög slæmu ástandi og hefur lúðuafli minnkað ár frá ári og mun nú vera í sögulegu lágmarki. Þá var einnig bent á að í skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar ,,Nytjastofnar sjávar 2002/2003 og aflahorfur fiskveiðiárið 2003/2004`` var lýst mjög slæmu ástandi stofnsins og stjórnvöldum ráðið frá því að heimila beinar veiðar á lúðu.

Samningurinn tók gildi til bráðabirgða í apríl 2003 og telur nefndin að rétt hefði verið að leggja hann fyrir Alþingi strax í upphafi haustþings en ljóst er að hann kemur mjög seint til efnismeðferðar í þinginu. Utanrmn. kemst ekki hjá því að gera athugasemd við þennan drátt á málsmeðferðinni.

Hæstv. forseti. Samstaða var um málið í nefndinni og leggur hún til að tillagan verði samþykkt.

Ágúst Ólafur Ágústsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nál. skrifa hv. þm. Sólveig Pétursdóttir formaður, Guðmundur Árni Stefánsson, Jónína Bjartmarz, Drífa Hjartardóttir, Össur Skarphéðinsson, Steingrímur J. Sigfússon, Einar K. Guðfinnsson og Magnús Stefánsson.