Endurgreiðsla tannlæknakostnaðar

Mánudaginn 29. mars 2004, kl. 15:25:08 (5674)

2004-03-29 15:25:08# 130. lþ. 89.1 fundur 439#B endurgreiðsla tannlæknakostnaðar# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur, 130. lþ.

[15:25]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Það er vissulega eitt sem þarf að huga sérstaklega að í þessu efni sem ég legg mikla áherslu á og það er hvaða ástæður eru fyrir því að börn koma ekki til tannlæknis. Eitt af því sem við þurfum að kanna og fá vitneskju um er hvort efnahagslegar ástæður séu fyrir því. Það er einmitt þess vegna sem við erum að fara í þessa viðamiklu rannsókn til að undirbúa stefnumörkun í þessu efni.