Guðjón A. Kristjánsson:
Hæstv. forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um loðnusamning sem framlengist sjálfkrafa miðað við 31. maí um eitt ár í senn. Samningnum þarf að segja upp með 6 mánaða fyrirvara eigi að segja honum upp, þ.e. fyrir 1. desember ár hvert.
Það er eins með þennan samning og þá aðra sem við höfum verið að greiða atkvæði um, hann er lagður fram löngu eftir að hann var gerður. Við teljum að það eigi að segja upp samningnum um loðnuveiðar við Norðmenn í ljósi þeirrar stöðu sem núna er í samningaviðræðum milli Íslendinga og Norðmanna varðandi síldina. Við munum ekki greiða þessum samningi atkvæði.