Jón Gunnarsson (andsvar):
Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir að svara þessu, og svara mjög skýrt. Ég vil bara lýsa þeirri skoðun minni og þeirri afstöðu að við hljótum þá að þurfa í þessu sambandi og hvað varðar lögin um stjórn fiskveiða að fara í gegnum þau með nákvæmlega það sjónarmið að leiðarljósi að gæta samræmis milli aðila sem eru að gera svipaða hluti.