Veiðieftirlitsgjald

Þriðjudaginn 30. mars 2004, kl. 18:31:12 (5831)

2004-03-30 18:31:12# 130. lþ. 90.6 fundur 787. mál: #A veiðieftirlitsgjald# (afnám gjalds) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 130. lþ.

[18:31]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Það er auðvitað göfugt sjónarmið hjá hv. þingmanni að fara í gegnum lögin og gæta samræmis. Menn verða þá að gera það á sömu forsendum, að þegar samræmis er gætt sé verið að bera saman epli og epli og appelsínur og appelsínur en ekki epli og appelsínur, eins og mér heyrðist hann reyndar vera að gera í fyrstu ræðu sinni.