Veiðieftirlitsgjald

Þriðjudaginn 30. mars 2004, kl. 18:50:13 (5839)

2004-03-30 18:50:13# 130. lþ. 90.6 fundur 787. mál: #A veiðieftirlitsgjald# (afnám gjalds) frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 130. lþ.

[18:50]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þm. að fiskifræðin er ónákvæm vísindi. En það þýðir hins vegar ekki að ekki eigi að taka mark á vísindum. Það þýðir að þá eigi að fara varlega í þeim ákvörðunum sem við byggjum á vísindunum.