Hjálmar Árnason:
Frú forseti. Það er ávallt gaman að heyra umræður um framhaldsskóla og staðsetningu þeirra enda er fátt mikilvægara hverju byggðarlagi en öflugir skólar eins og dæmin sanna. Mér finnst svar hæstv. ráðherra lýsa mikilli ábyrgð, þ.e. að horfa til framtíðar en meta stöðuna eins og hún er í dag. Þá vaknar þessi grundvallarspurning: Hvenær er tímabært að hefja rekstur framhaldsskóla í sveitarfélagi? Þetta hefur alltaf verið slagur, eins og sagan sýnir.
Mig langar til að velta því upp hvort hæstv. ráðherra teldi koma til greina að varpa framhaldsskólanum yfir til sveitarfélaganna, að þá verði tekið mið af því í tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga þannig að sveitarfélögin geti axlað þessa ábyrgð og þau sem framsæknust eru geti tekið sjálfstæða ákvörðun um þetta og þannig í rauninni keppt sín á milli. Eiga framhaldsskólar endilega að vera á herðum ríkisins, af hverju ekki alveg eins sveitarfélaga?