Drífa Hjartardóttir:
Virðulegur forseti. Hér er til umræðu jöfnun búsetuskilyrða. Ég tel að gert hafi verið töluvert mikið til þess og að verið sé að vinna að því. Ég vil nefna nokkur atriði. Ég vil nefna jöfnun húshitunarkostnaðar, jöfnun ferðakostnaðar námsmanna, fjarnámið og hvernig það hefur aukist ár frá ári. Það er orðið alveg gríðarlega umsvifamikið á öllum stigum framhaldsnáms. Ég vil nefna samgöngur sem hafa verið bættar alveg feikilega mikið. Ég vil einnig taka fram að það skiptir máli líka að talað sé jákvætt um það sem verið er að gera vegna þess að það er líka byggðamál út af fyrir sig að tala jákvætt um byggðarlag sitt og hvað þar er verið að gera. Það er betra en að rífa allt niður því margt er verið að gera. Ég þakka hv. þm. Kristjáni L. Möller fyrir að vekja máls á því og skapa tækifæri til þess að hér komi fram hvað verið er að gera í byggðamálum.