Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Það var nú reyndar farið inn á sjávarútvegsmálin eins og svo oft þegar byggðamál eru til umfjöllunar. (GAK: Eru þau ekki atvinnumál?) Ég ítreka að sérstakur ráðherra fer með sjávarútvegsmál í ríkisstjórninni. Hann er ekki til svara nú.
Ég vil hins vegar leiðrétta það sem kom fram hjá hv. þm., að byggðakvótarnir hafi verið lagðir af. Það er ekki þannig. Mér finnst ekki rétt af honum að senda röng skilaboð út í samfélagið eins og hann gerir gjarnan. Mér finnst heldur ekki sérstaklega viðeigandi að tala um einstaka staði á landinu í svona umræðum eins og hér fara fram.
Það er vissulega þannig, eins og ég sagði áðan, að upp geta komið erfiðleikar á einstaka stöðum og ég ætla ekki að draga neina fjöður yfir það að fiskveiðistjórnarkerfið sem við höfum á Íslandi er ekki þannig að það tryggi byggð í landinu. Þetta fyrirkomulag er bara ekki þannig. (Gripið fram í.) Þess vegna viljum við hafa möguleika til þess að grípa til aðgerða, þ.e. til þess að bregðast við þegar vandi kemur upp og það er það sem við reynum að gera.
Hvað Rarik varðar þá svaraði ég hér fyrirspurn ekki alls fyrir löngu um það málefni frá hv. þm. Drífu Hjartardóttur. Ég fer því ekki frekar út í það.
Af því að hér var talað um þenslu á Austurlandi og að þurft hefði að bregðast við henni, hvernig var þá þegar þenslan var á Vesturlandi? Af því að hv. þm. er þingmaður Vesturlands má nefna að mikil þensla var á Vesturlandi án þess að sérstaklega væri brugðist við henni á Norðurlandi eða Austurlandi. (Gripið fram í: Hún hefði getað ...)
Það er þannig að þegar tækifæri skapast í uppbyggingu atvinnulífs, eins og hefur gerst á Vesturlandi og eins og hefur gerst á Austurlandi og á eftir að gerast í auknum mæli á Vesturlandi, þá erum við þakklát fyrir það og nýtum þau tækifæri. Ég vona að hv. þm. sé ekki að tala um að hætta eigi við vegna þess að slík þensla eða slík uppbygging atvinnulífs nái ekki til alls landsins.