Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir):
Virðulegi forseti. Það er ljóst að eðli afbrota hefur breyst mjög á undanförnum hér á landi. Ef skoðuð er saga þeirra sem gista fangelsi landsins bara núna síðustu 15--20 ár þá sýnir það sig að þeir eru í vaxandi mæli fíkniefnaneytendur og hafa oft og tíðum verið í mjög harðri neyslu nokkur undanfarin ár áður en þeir eru vistaðir í fangelsi. Vakin hefur verið athygli á því að við höfum kannski ekki í okkar fangelsismálum svarað þessari auknu þörf fyrir meðferð fanga vegna fíkniefnaneyslu. Árið 1994 kom skýrsla frá nefnd Evrópuráðsins um hvernig staðið er að fangelsismálum, aðbúnaði fanga og framkvæmd refsinga. Sú nefnd skoðaði fangelsin hér 1993 og sendi frá sér skýrslu 1994. Þar voru gerðar ýmsar athugasemdir um framkvæmd refsinga og aðbúnað fanga hér á landi, sérstaklega hvað varðar gæsluvarðhald og heilbrigðisþjónustu. Nefndin sendi frá sér tilmæli um úrbætur til íslenskra stjórnvalda þar sem fyrst og fremst var farið fram á aukna heilbrigðisþjónustu í fangelsum og réttindi fanga þar að lútandi voru ítrekuð. Sérstaklega voru lögð fram tilmæli hvað varðar forvarnir og fíkniefnameðferð. Í tilmælunum segir, með leyfi forseta:
,,Forvarnir gegn vímuefnaneyslu skulu efldar, vímuefnameðferð bætt og undirbúningur fyrir lausn úr fangelsi aukin til að minnka líkur á því að fangi hefji aftur neyslu.``
Í skýrslu starfshóps um stefnumótun í geðheilbrigðismálum sem þáverandi heilbrrh. Ingibjörg Pálmadóttir skipaði og skilaði af sér í október 1998 er einnig lögð áhersla á nauðsyn þess að efla meðferðarþjónustu fyrir fanga vegna geðsjúkdóma og áfengis- eða vímuefnafíknar. Það er einnig þekkt að þetta tvennt fer oft saman. Þar er vakin athygli á að geðdeildir sjúkrahúsanna hafi ekki tekið við afplánunarföngum í áfengismeðferð og þó SÁÁ hafi boðið upp á samstarf við fangelsisyfirvöld hafa fangar átt kost á meðferð við lok afplánunar.
Nú er ljóst að sífellt fleiri, eins og ég sagði áðan, afplána dóma vegna afbrota sem framin eru undir áhrifum vímuefna. Flestir eru háðir vímuefnum og hafa verið í mikilli neyslu þegar til afplánunar kemur og þyrftu nauðsynlega á langvarandi meðferð að halda strax og afplánun hefst. Í langan tíma hafa þeir sem hafa látið sig fangelsismál varða lagt áherslu á að stofnuð verði sérstök meðferðardeild við fangelsin og fyrrverandi dómsmrh. hefur einnig tekið undir þau sjónarmið. En því miður hefur heldur lítið gerst í málinu.
Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að opnuð verði meðferðardeild vegna áfengis- og vímuefnaneyslu við fangelsi landsins. Ef svo er, þá hvenær, ef ekki, hver er ástæða þess?