Dagný Jónsdóttir (andsvar):
Frú forseti. Ég tek undir áherslur hv. þm. Marðar Árnasonar á sjálfstæði háskólans. En ég vil líka velta upp ákveðnum spurningum. Við eigum t.d. þjóðlífsfulltrúa í háskólaráði. Ég hef sjálf reynslu af því að sitja þar. Ég er þeirrar skoðunar að sú seta hafi afskaplega jákvæð og góð áhrif á t.d. háskólaráð og Háskóla Íslands. Slíkir fulltrúar hafa jafnvel aðrar áherslur og koma með önnur sjónarmið sem ég held að sé alltaf gott, að hafa breitt svið á þeim vettvangi. Þetta hefur gefist vel í dómnefndum innan háskólans. Eins og hæstv. menntmrh. kom inn á áðan er það auðvitað undir menntmn. komið hvenær við tökum á þessu máli. Við munum leita umsagna og það verður fróðlegt að sjá hvaða umsagnir berast um nákvæmlega þetta atriði.