Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og við skulum vona að við sjáum betri tíð fram undan fyrir atvinnulausa með starfi þeirra tveggja nefnda sem hæstv. ráðherra nefndi.
En hæstv. ráðherra svaraði ekki því sem ég spurði varðandi afstöðu hans til þess hvort hætta ætti að skattleggja atvinnuleysisbætur og fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. Mér finnst mjög mikilvægt að fá sjónarmið hans inn í þá umræðu. Hér er kannski um að ræða ósanngjörnustu skattlagningu sem til er, að skattleggja atvinnuleysisbætur og fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna.
Ég spurði líka hæstv. ráðherra um aðgerðir gegn fátækt en mér skilst að það mál sé bara tilbúið og á borðum ráðherranna og ég skil ekki af hverju það er ekki komið inn í þingið.
Síðan vildi ég mjög gjarnan fá fram afstöðu ráðherrans til fæðingarorlofsins gagnvart atvinnulausum sem ég nefndi vegna þess að ég held að það sé vandamál sem við hljótum að verða að skoða í sameiningu.
Varðandi upphæð atvinnuleysisbóta sem við hv. þm. Hjálmar Árnason ræddum, þá er víða erlendis, eins og hæstv. ráðherra þekkir, atvinnuleysisbótaviðmiðið hlutfall af tekjum sem viðkomandi hefur haft á vinnumarkaðnum og ég held að við verðum að fara að skoða þá leið. Ég held líka að við þurfum að fara að skoða þá leið að lögbinda lágmarkslaun sem eru allt of lág og halda niðri atvinnuleysisbótunum að mínu viti. Þess vegna held ég að við verðum að skoða leið til þess að hækka lágmarkslaunin og ég sé orðið ekki aðra leið til þess en að fara í einhvers konar lögbindingu á þeim vegna þess að eins og þau eru og hafa þróast halda þau atvinnuleysisbótunum niðri.