Ágúst Ólafur Ágústsson:
Frú forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir svör hans. Jafnframt þakka ég öðrum hv. þm. fyrir þátttöku í umræðunni.
Ég vil þó byrja á að lýsa vonbrigðum með svör hæstv. félmrh. sem lýsir stuðningi við þessa aðför að persónuréttindum hins vinnandi manns og telur hana réttlætanlega. Hæstv. félmrh. tekur undir að þessi réttur skuli vera hjá atvinnurekendum og er það miður. Þótt menn setji slík ákvæði í ráðningarsamninga af góðum vilja verðum við að hafa í huga að menn réttlæta iðulega hvers konar eftirlit og skerðingu á persónuréttindum með fögrum markmiðum og á því ætti hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson að átta sig. Hér er einfaldlega gengið of langt og það er hægt að bregðast við með öðrum og vægari leiðum. Opin heimild til atvinnurekenda um fyrirvaralausa lífsýnatöku án skilyrða er siðferðislega óverjandi. Fólk er með réttu viðkvæmt fyrir sýnatökum, t.d. með hliðsjón af þeim mistökum sem iðulega gerast við slíkar sýnatökur. Á það hefur verið bent.
Nú er víða rætt um að allt sé leyfilegt í nafni framleiðniaukningar og öryggis. En við þurfum að gæta þess að mannréttindi og frjáls réttur einstaklingsins séu ekki virt að vettugi. Það er alveg með ólíkindum að hv. þingmenn ríkisstjórnarflokkanna hafi talað í þessari umræðu eins og þeir hafa gert. Hv. þm. Hjálmar Árnason ber þetta aðra stundina saman við eftirlit foreldra á hugsanlegri vímuefnanotkun barna sinna og hina stundina talar hann eins og starfsmenn fyrirtækja upp til hópa séu undir áhrifum vímuefna. Þetta er mjög furðulegur málflutningur sem kemur þessu máli ekkert við.
Hins vegar er hægt að taka undir þau hvatningarorð yfirlæknis Vinnueftirlitsins að þessi umræða þarf að fara fram. Samf. vill opna umræðu um þessi grundvallarmál. Við getum ekki lætt svona afsali á persónuréttindum inn í samfélag okkar án umræðu.
Að lokum þakka ég enn og aftur fyrir þessa umræðu. Ég tel hana einungis vera upphafið að skoðanaskiptum um þessi grundvallaratriði sem varða persónuvernd og hvort og hversu langt við viljum ganga á slík réttindi.