Rannsókn flugslysa

Fimmtudaginn 01. apríl 2004, kl. 16:17:57 (6036)

2004-04-01 16:17:57# 130. lþ. 93.11 fundur 451. mál: #A rannsókn flugslysa# frv., Frsm. GHall
[prenta uppsett í dálka] 93. fundur, 130. lþ.

[16:17]

Frsm. samgn. (Guðmundur Hallvarðsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frumvarp til laga um rannsókn flugslysa, frá samgn.

Þetta mál hefur fengið allítarlega umfjöllun, bæði á árinu 2002 og 2003 í samgn. og aftur nú í ár. Það nál. sem hér er mælt fyrir er samþykkt samhljóða af samgn.

Fjölmargir aðilar komu til nefndarinnar til að fara yfir málið og var greinilegt að þegar umræðan fór fram hafði mikið verið unnið í málinu. Nokkuð góð sátt virtist því almennt um helstu atriði hjá þeim sem að þessu máli koma.

Eins og kemur fram í athugasemdum með frumvarpinu felur það í sér heildarendurskoðun á löggjöf um rannsóknir flugslysa. Frumvarp sama efnis var lagt fram á 128. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga enda varð samgöngunefnd þá vör við mikla andstöðu við ýmis ákvæði þess frumvarps. Samgönguráðherra skipaði starfshóp 2. maí 2003 sem í voru Andri Árnason hrl., formaður, Hilmar B. Baldursson, f.h. Flugráðs, Loftur Jóhannsson, f.h. Félags íslenskra flugumferðarstjóra, Þormóður Þormóðsson, f.h. rannsóknarnefndar flugslysa, og Kjartan Norðdahl, f.h. Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Starfshópurinn yfirfór eldra frumvarpið og lagði fyrir ráðherra tillögur til breytinga sem virðast hafa tekið nokkurt mið af þeim athugasemdum sem bárust samgöngunefnd vegna eldra frumvarpsins auk þess sem hópurinn leit til þróunar alþjóðareglna á þessu sviði. Það er mat nefndarinnar að vel hafi tekist til við breytingar á frumvarpinu og í athugasemdum sem nefndinni bárust vegna málsins kemur skýrlega fram að mun meiri sátt er um þetta frumvarp en það sem lagt var fram á 128. löggjafarþingi.

Samgn. leggur þó til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Þær eru eftirfarandi:

1. Lagt er til að orðalagi 1. mgr. 2. gr. verði breytt til að auka skýrleika ákvæðisins sem mælir fyrir um hvert skuli vera markmið flugslysarannsóknar.

2. Lagt er til að fyrri málsliður 4. mgr. 3. gr. falli brott enda telur nefndin rétt að aðsetur rannsóknarnefndar flugslysa geti ráðist af aðstæðum og að ekki þurfi að ákveða það í lögum.

3. Lagt er til að orðalagi 2. mgr. 6. gr. verði breytt þannig að skýrt sé að forstöðumaður og aðstoðarforstöðumaður flugslysarannsóknarnefndar skuli hafa sérmenntun auk starfsreynslu á sviði flugmála og/eða flugslysarannsókna. Nefndin telur að orðið ,,flugmála`` geti haft nokkuð víðtæka merkingu og þannig náð til hinna ýmsu þátta í flugi, svo sem flugstjórnar, flugumferðarstjórnar, verkfræði, flugréttar o.fl.

4. Lagt er til breytt orðalag í 8. gr.

5. Lagt er til að í stað orðsins ,,tafarlaust`` í fyrri málslið 1. mgr. 11. gr. komi ,,án ástæðulausrar tafar`` þar sem nefndin telur það orðalag ná betur yfir þá skyldu sem verið er að leggja á fólk. Þá er lagt til að vaktstöð samkvæmt lögum nr. 25/1995, um samræmda neyðarsímsvörun, verði bætt við þá aðila sem hafa sérstakar skyldur samkvæmt síðari málslið 1. mgr. 11. gr. þar sem ljóst er að einstaklingar sem ekki tengjast flugi náið muni ekki hringja beint í rannsóknarnefnd flugslysa heldur miklu fremur í neyðarnúmerið 112 og tilkynna flugslys sem þeir verða vitni að og uppfylla þannig skyldu sína skv. 1. mgr.

6. Lagt er til að í stað orðsins ,,slyssins`` í síðari málslið 1. mgr. 17. gr. komi ,,flugslyssins`` sem er það yfirhugtak sem notað er annars staðar í frumvarpinu.

7. Smávægileg orðalagsbreyting er lögð til við fyrri málslið 2. mgr. 19. gr.

8. Lagt er til að gildistöku verði frestað til 1. september 2004, þar sem eðlilegt er að tími vinnist til að undirbúa gildistöku lagasetningar þeirrar sem hér um ræðir.

9. Loks er lagt til að 2. mgr. bráðabirgðaákvæðisins falli brott.

Ég vil geta þess sérstaklega að nefndin hefur fjallað um atriði sem snýr að varðveislu muna vegna flugslysa varðandi hluta úr vélum eða annað þess háttar. Nefndin er sammála um að ræða það mál á milli funda, taka það aftur inn í samgn. og gera smávægilega breytingu á frumvarpinu sem væri þó afar mikilvæg með tilliti til flugslysa og upplýsinga um þau, geymslu muna eða þess sem hugsanlega gæti haft áhrif á upplýsingu mála.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með framangreindum breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir, Jóhann Ársælsson, Einar Már Sigurðarson og Guðjón Arnar Kristjánsson skrifa undir álitið með fyrirvara og áskilja sér rétt til að leggja fram og styðja breytingartillögur við málið. Um það gat ég áðan.

Þuríður Backman sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er hún samþykk áliti þessu en þó með fyrirvara hvað varðar skipan rannsóknarnefndar flugslysa. Sá fyrirvari hv. þm. lýtur að því sem segir í frumvarpinu, að flugslysanefnd verði skipuð þremur mönnum, auk tveggja starfsmanna en í eldri lögum var talað um að í flugslysanefnd ættu sæti fimm aðilar.

Nefndarálit þetta er undirritað 25. mars 2004. Undir það rita auk mín hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson, Guðjón Hjörleifsson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Birkir J. Jónsson og með fyrirvara, hv. þm. Ásta R. Jóhannesdóttir, Jóhann Ársælsson, Einar Már Sigurðarson og Guðjón A. Kristjánsson.

Að lokinni þessari umræðu, virðulegi forseti, legg ég til að málinu verði vísað aftur til samgn. og síðan til 3. umr.