Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

Mánudaginn 05. apríl 2004, kl. 18:08:54 (6076)

2004-04-05 18:08:54# 130. lþ. 94.14 fundur 868. mál: #A þjóðgarðurinn á Þingvöllum# frv. 47/2004, MÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 130. lþ.

[18:08]

Mörður Árnason (andsvar):

Forseti. Þetta er merkileg lögfræði og umhugsunarverð. Ég tek þá næstu daga í að hugsa um það. En spurningin sem hæstv. forsrh. þarf að svara mér enn fremur er: Lítur hann á eign íslensku þjóðarinnar á Þingvöllum með sama hætti og ríkiseign í merkingunni fasteign eða jörð? Ef ekki, hver er þá munurinn?