Olíugjald og kílómetragjald o.fl.

Mánudaginn 05. apríl 2004, kl. 20:52:06 (6103)

2004-04-05 20:52:06# 130. lþ. 94.15 fundur 849. mál: #A olíugjald og kílómetragjald o.fl.# (heildarlög) frv. 87/2004, PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 94. fundur, 130. lþ.

[20:52]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Frú forseti. Þungaskatturinn er lagður af þannig að í staðinn kemur litun og mælunum er fækkað verulega. Mér skilst að þeir séu um 15 þús. í dag og þeim mun fækka niður í þriðjung þess. Sá kostnaður minnkar mikið. Ég held að þar með sé ég búinn að svara hv. þm.