Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Mér er ekkert að vanbúnaði að fara í sérstaka umræðu um þessa skýrslu ef forsætisnefnd þingsins ákveður það. Hins vegar er dagskrá þingsins ávallt hlaðin og alltaf erfitt að finna tíma fyrir umræður um utanríkismál. Mér finnst, sem utanríkisráðherra, mjög mikilvægt að umræður um utanríkismál séu sem mestar á hv. Alþingi og hef aldrei skorast undan því að taka þátt í þeim. Sé óskað eftir því mun ég að sjálfsögðu verða við því en mér fannst gæta ákveðins misskilnings í máli hv. þm. og ég tek eftir því að hann hefur tekið það til athugunar. Hann hefur viðurkennt þann misskilning og ég tel ástæðulaust að það verði eitthvert deiluefni.
Ég vildi fyrst og fremst koma því á framfæri við hv. þm. að okkur var mjög í mun að koma skýrslunni í hendur þingmanna sem fyrst, enda höfðum við enga ástæðu til að tefja það með neinum hætti. Hins vegar var gerð skýrslunnar heilmikið verk og starfsmenn utanríkisþjónustunnar hafa unnið hörðum höndum að því að koma henni í þennan búning. Ég tel að það hafi verið vel af hendi leyst. Ég bið hv. þm. að skilja málið með þeim hætti.