Forseti (Jónína Bjartmarz):
Vegna orða hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar sem forseti skildi þannig að honum þættu þröngar skorður til að ræða utanríkismál og sérstaklega varnar- og öryggismál, vill forseti benda á að umræðan hefur staðið síðan kl. hálftvö í dag. Hverjum og einum þingmanni er heimilt að taka til máls tvisvar, 15 mínútur í senn, og vegna orða hv. þm. um að umræða utan dagskrár væri í hálftíma vil ég árétta við hann að það er líka hægt að fá ótímabundna umræðu og hefur ekki verið farið fram á það.