Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Hv. þingmenn Samf. tala mikið um hvort eitthvað sé til sem heitir plan b ef allt fer á versta veg. Það er þannig í lífinu að þegar menn eru að vinna að ákveðnum verkefnum gera menn það á þeim grundvelli að þeir séu að gera sitt besta og hafi trú á sínum málstað. Það á ekki bara við um þetta mál, það á við um öll mál.
Ég tek eftir því að í öllum málum vill Samf. vinna með allt öðrum hætti, hefur ekki trú á því sem verið er að gera og vill búa til einhver plön b og c. Þetta á við um atvinnumál og utanríkismál. Þannig er ekki hægt að vinna að stórum málum. (Gripið fram í: B er nú gott.) Já, en þið eruð að vísu búin að leggja niður A-ið. Hljóðið í utanríkisstefnunni hefur breyst síðan A-ið var lagt niður því að maður veit ekki alltaf hvert Samf. vill fara í utanríkismálum. Það er kannski að verða skýrt núna hvað hún vill í varnar- og öryggismálum.
Það má ekki nálgast þessi alvarlegu varnar- og öryggismál út frá atvinnumálum. Það verður að sjálfsögðu að nálgast þau út frá öryggismálum þjóðarinnar og öryggi landsins. Það er gert. Auðvitað veit ég að þetta snertir atvinnumál okkar en mér finnst ávallt þegar hv. þm. Jón Gunnarsson kemur hér upp að hann vilji nálgast þessi mál fyrst og fremst og nær eingöngu út frá atvinnumálum. Það vildi gamli Alþýðuflokkurinn ekki.