Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Þetta er svolítið skringileg umræða. Við höfum fylgst með því í vetur að það er mikil óeining innan Framsfl. um hvað eigi að gera í málinu. Hæstv. iðnrh. lýsti því yfir að 30 ára stríð hafi tapast og það sé miklu betra að markaðssetja þorrablót erlendis en kjötið og kannski er hún að því í Kína núna. En hæstv. utanrrh., sem er formaður flokksins, gerði vel í því að lýsa því í ræðustól hver stefna Framsfl. er í málinu. Hefur þetta mistekist? Er þetta búið spil eða munu þessar 10 millj. kr. og starfsmaðurinn úr utanrrn. geta bjargað einhverju hvað varðar sölu á lambakjöti erlendis? Ég held alla vega að það sé kominn tími til að Framsfl. tali skýrt og það verði tekið upp úr pokanum sem þar er.