Fyrirspyrjandi (Valdimar L. Friðriksson):
Virðulegi forseti. Á síðustu mánuðum hefur verið allnokkur umræða um börn með svokallað Goldenhar-heilkenni og aðstandendur þeirra. Ég sé ekki ástæðu til að reifa frekar alla málavöxtu en við í Samf. höfum reynt að halda mönnum við efnið í því máli. Ýmis vandamál þarf að leysa, bæði hjá félmrn. og heilbr.- og trmrn.
Í nóvember sl. bar hv. þm. Margrét Frímannsdóttir upp fyrirspurn um þetta mál til hæstv. heilbr.- og trmrh. Með hliðsjón af svörum hans ber ég upp fyrirspurn til að fá upplýsingar um framvindu mála. Ég spyr:
,,1. Hvað kom út úr könnun sem ráðherra lét gera á réttindum barna með Goldenhar-heilkenni?
2. Telur ráðherra að þau njóti fyllstu mögulegra réttinda innan tryggingakerfisins? Ef svo er ekki, hvar er þörf á úrbótum?
3. Hefur ráðherra tekið ákvörðun um breytingar á afsláttarsviði umönnunarkorta og ef svo er, hverjar eru þær? Ef svo er ekki, telur ráðherra að afsláttarsvið umönnunarkortanna sé nægilega víðtækt?``