Börn með Goldenhar-heilkenni

Miðvikudaginn 14. apríl 2004, kl. 19:00:10 (6330)

2004-04-14 19:00:10# 130. lþ. 96.15 fundur 729. mál: #A börn með Goldenhar-heilkenni# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 130. lþ.

[19:00]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég hef ekki meiru við svörin að bæta. Ég þakka fyrir að þessu máli var hreyft og ég þakka áhugann á vanda þeirra barna sem hér um ræðir. Mér er kunnugt um vanda foreldranna sem þarna er um að ræða og þau hafa rætt sín mál við mig. Við munum reyna að vinna í þessu máli áfram eins og við höfum verið að gera.