Landbúnaðarráðherra (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég kannast lítið við þetta grugguga vatn sem hv. þm. talar um. (Gripið fram í.) Ég horfi á fallegu Ölfusána út um gluggann minn og þekki Hvítána frá barnæsku og minni á að meira að segja í öflugum jökulám er stunduð mikil stangveiði og fer vaxandi.
Hvað spurningar hv. þingmanns varðar vil ég segja að eins og í öðrum veiðifélögum landsins er það viðkomandi veiðifélag sem ákveður hvernig veiðinýtingu sé háttað á félagssvæðinu innan þess ramma sem lög landsins leyfa. Veiðifélag Árnesinga fer með veiðirétt á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár. Það hefur látið vinna skýrslu, eins og hv. þm. ræddi um, og nefnd á vegum félagsins hefur farið yfir framtíð þessa vatnasvæðis, hvernig það verði best nýtt, bæði fyrir eigendur jarðanna og ekki síður fyrir samfélagið í Árnesþingi. Þar sjá menn eðlilega mörg og stór tækifæri. Hvað út úr því kemur er auðvitað þeirra sem með þetta fara. Þeir verða að fá frið til að vinna það verk.
Ég ber virðingu fyrir hinni gömlu netaveiði og tel mikilvægt að ná sátt við þá sem hana stunda um að netin fari upp. Það er engin önnur leið í málinu. Ég tel mikla hagsmuni fólgna í því að breyta um á svæðinu en það verður bæði að vera eftir lögunum og þessu félagslega kerfi. Ég sé ekki aðkomu ráðherra að málinu að svo komnu. Ég veit að bændurnir eru um þessar mundir og á aðalfundi Veiðifélags Árnesinga að ræða þessi mál, hvernig málum verði best háttað hvað þetta varðar í framtíðinni.
Varðandi aðra spurninguna vill svo til að á morgun mun ég einmitt mæla fyrir frv. um breytingar á lax- og silungsveiðilögunum. Ef það frv. verður að lögum munu tekjustofnar Fiskræktarsjóðs eflast. Verði það að lögum á þessu ári --- það mun auðvitað gerast á lengri tíma með því að öll vatnsorka borgi 3 prómill til sjóðsins eins og gert er í mörgum löndum og jafnvel meira t.d. í Noregi og Svíþjóð --- mun það hafa veruleg áhrif til þess að efla Fiskræktarsjóðinn. Hann verður nýttur á þessu svæði eins og mörgum öðrum. Ég sé fyrir mér að ef frv. sem ég mæli fyrir á morgun verður að lögum muni skapast ný tækifæri á þessu sviði.
Hvað svo varðar síðustu spurninguna fer auðvitað Heilbrigðiseftirlit Suðurlands með mengunarmál á þessu svæði. Málaflokkurinn heyrir undir umhvrn. Ég þekki þessi mál úr heimahéraði mínu og sem betur fer hafa stórfyrirtæki á Selfossi og bæjarfélagið þar tekið töluvert mikið á varðandi það sem fer út í ána. Í því hefur mikið verk verið unnið á síðustu árum. Ég tek undir að mikilvægt er að stöðva þá mengun og reyna að halda vatnasvæðinu sem hreinustu. Ég mun leggja fram það lið sem ég get og stuðning, bæði sem ráðherra og einstaklingur í héraðinu, til að þar gangi menn vasklega fram.
Eins og ég sagði í upphafi horfi ég stundum á vandræðin af völdum þessa út um gluggann hjá mér. Ég þekki þá sögu sem hv. þm. ýjar hér að. Það er mikilvægt að taka á bæði úrgangi frá sláturhúsi, mjólkurbúi og bæjarfélögunum sjálfum. Mikil fyrirheit hafa verið gefin og mikið hefur verið gert í þeim efnum á síðustu árum. Ég vona að svæðið verði sem fyrst hreint.
Eitt stórt atriði get ég nefnt, að því miður verður ullarþvottastöðin að fara úr Hveragerði. Hún er á förum þaðan. Hún hefur mengað eina hlið Ölfusár og komið afrennsli þaðan. Á því verður breyting og verður á ný hægt að veiða þar. Þetta eru stór mál sem við verðum að huga að.