Rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Fimmtudaginn 15. apríl 2004, kl. 11:51:02 (6374)

2004-04-15 11:51:02# 130. lþ. 97.1 fundur 878. mál: #A rannsóknir í þágu atvinnuveganna# (Landbúnaðarháskóli Íslands) frv. 79/2004, 879. mál: #A búnaðarfræðsla# (Landbúnaðarháskóli Íslands) frv. 71/2004, KÓ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 130. lþ.

[11:51]

Kjartan Ólafsson (andsvar):

Herra forseti. Varðandi spurningu hv. þm. hvort ég styðji að stofnanirnar færist undir menntmrn. vil ég endurtaka það sem ég sagði áðan að þetta er 1. umr. um þennan málaflokk. Ég benti á að þær þrjár skýrslur sem gerðar hefðu verið um hvern og einn skóla landbúnaðarins væru mjög athyglisverðar og að ég mundi vilja taka þær inn í heildarumræðuna. Þannig vil ég svara hv. þm. að sinni.