Rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Fimmtudaginn 15. apríl 2004, kl. 14:32:46 (6403)

2004-04-15 14:32:46# 130. lþ. 97.1 fundur 878. mál: #A rannsóknir í þágu atvinnuveganna# (Landbúnaðarháskóli Íslands) frv. 79/2004, 879. mál: #A búnaðarfræðsla# (Landbúnaðarháskóli Íslands) frv. 71/2004, KÓ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 130. lþ.

[14:32]

Kjartan Ólafsson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. álasar mér fyrir að ég hafi ekki sagt A í þessari umræðu (ÖS: Ég sagði það ekki.) Að ég hafi sagt A en ekki B. Gott og vel. Ég mun auðvitað segja D úr þessum ræðustól og ekkert annað en D og hæstv. landbrh. Guðni Ágústsson segir B en sumir eru hættir að segja A í pólitík á Íslandi og segja eitthvað allt annað.