2004-04-16 10:49:07# 130. lþ. 98.95 fundur 477#B álit kærunefndar jafnréttismála um skipan hæstaréttardómara og viðbrögð dómsmálaráðherra# (umræður utan dagskrár), ÁÓÁ
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur, 130. lþ.

[10:49]

Ágúst Ólafur Ágústsson:

Herra forseti. Viðbrögð hæstv. dómsmrh. í þessu máli hafa verið með ólíkindum. Málsvörn hæstv. dómsmrh. í fjölmiðlum er sú að hann er ósammála jafnréttislögunum og því skiptir brot á þeim ekki máli. Svona talar hæstv. dómsmrh. um landslögin. Það er öll virðingin fyrir lögum landsins. Viðbrögð hæstv. dómsmrh. eru skólabókardæmi um valdhroka og skólabókardæmi um mann sem hefur verið of lengi við völd. Ég trúi því ekki að þjóðin og kjósendur Sjálfstfl. líði það að sjálfur dómsmrh. brjóti lögin einfaldlega vegna þess að hann er þeim ósammála.

Hæstv. dómsmrh. hefur kallað jafnréttislögin barn síns tíma og tímaskekkju og telur lagasetninguna gallaða. En hvað hefur breyst frá umræðunni við setningu laganna fyrir aðeins fjórum árum þegar hæstv. menntmrh. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði, með leyfi forseta: ,,... er þetta frv. mjög mikil framför fyrir jafnréttismálin og fjölskyldur í landinu.`` Eða hv. þm. Sjálfstfl. Arnbjörg Sveinsdóttir sagði, með leyfi forseta: ,,Ég tel hins vegar að þetta frv. sé mjög vel unnið ...`` Eða enn einn hv. þm. Sjálfstfl. Drífa Hjartardóttir sagði, með leyfi forseta: ,,Ég held að það skipti mjög miklu máli að við höfum þetta frv. til laga að leiðarljósi.`` Eða Ásta Möller sagði, með leyfi forseta: ,,... enda ber frv. þess merki að vandað hefur verið til verksins.`` Ég beini því þeirri spurningu til þingmanna Sjálfstfl. sem allir studdu lögin á sínum tíma: Hvað hefur breyst?

Afstaða hæstv. dómsmrh. og formanns Sjálfstfl. liggur fyrir en hver er afstaða varaformanns Sjálfstfl.?

Herra forseti. Það segir sig sjálft að hæstv. dómsmrh. getur ekki búið við lög sem hann telur að séu stórgölluð og hann á ekki að gera það. Því hlýtur frv. að vera væntanlegt frá hæstv. dómsmrh., hin réttu jafnréttislög. Ég vil því að lokum beina þeirri spurningu til hæstv. dómsmrh.: Hvenær má vænta slíks frv. frá honum og hvaða breytingar ætlar hann að gera á jafnréttislögunum? Hvernig munu jafnréttislög Björns Bjarnasonar líta út?