Frsm. samgn. (Guðmundur Hallvarðsson):
Herra forseti. Það er rétt eins og fram hefur komið hér og áður í umræðu um frv. um rannsókn flugslysa að á milli þinga var verulega mikið og vel unnið í málinu og allmikil sátt um það. Það var hins vegar eðlilegt að þingmenn litu á fækkunina sem varð í flugslysanefndinni úr fimm í þrjá og hefðu nokkrar áhyggjur af því en þannig háttaði til að tveir af fimm fyrrverandi nefndarmönnum voru starfsmenn nefndarinnar. En því ákvæði er nú breytt. Ég hef rætt nokkuð við þá aðila sem eru næstir flugslysanefndinni og þeir, eins og hv. þm. Þuríður Backman kom inn á, sjá að þarna er stigið það skref sem fékk allmikla umræðu í nefndinni, þ.e. hvort það hefði skaðleg áhrif fyrir starfsemi rannsóknarinnar að með því ákvæði sem við komum hér að sé nokkuð stigið skref til sátta í því máli og hægt að kalla aðra nefndarmenn til ef svo óheppilega vildi til, sem maður vonar náttúrlega að aldrei verði, að fleiri en eitt slys, flugslys, yrðu á sama tíma.
Hvað varðar það sem hv. þm. Jóhann Ársælsson kom inn á sem snýr að lögreglurannsókn máls þá er eins og kemur fram í breytingunni lögreglan alltaf nærhendis þegar flugslys verður til þess að koma inn í málið í fyrstu atrennu rannsókna ef fyrir liggur að eitthvað sakhæft hafi gerst varðandi flugslysið. En ég skil mætavel það sem hv. þm. Jóhann Ársælsson kom inn á eftir þá umræðu sem varð hjá nefndinni við heimsókn ríkislögreglustjóra og athugasemdir hans, en með virkni laga um ólögmæta hætti hvað það áhrærir þá er tekið á því hér með þessum hætti.