Meðferð, vinnsla og dreifing sjávarafurða

Föstudaginn 23. apríl 2004, kl. 17:38:43 (6692)

2004-04-23 17:38:43# 130. lþ. 101.11 fundur 446. mál: #A meðferð, vinnsla og dreifing sjávarafurða# (slátrun eldisfisks) frv. 40/2004, Frsm. KHG
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 130. lþ.

[17:38]

Frsm. sjútvn. (Kristinn H. Gunnarsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. sjútvn. á þskj. 1406, sem er frv. til laga um breytingu á lögum um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða. Nefndin hefur að lokinni yfirferð orðið sammála um að afgreiða málið frá sjútvn. og leggja til við Alþingi að málið verði samþykkt. Nefndin skilar af sér eftirfarandi nál.:

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Kristin Hugason og Guðríði Margréti Kristjánsdóttur, frá sjávarútvegsráðuneyti, Ólaf Friðriksson og Atla Má Ingólfsson, frá landbúnaðarráðuneyti, Halldór Runólfsson, frá embætti yfirdýralæknis, og Gísla Jónsson, dýralækni fisksjúkdóma á Keldum.

Þá bárust nefndinni umsagnir um málið frá Umhverfisstofnun, landbúnaðarráðuneyti, embætti yfirdýralæknis, Landssambandi smábátaeigenda, Byggðastofnun, fiskeldisnefnd, Landssambandi veiðifélaga, Hafrannsóknastofnuninni og Veiðimálastofnun.

Í ljósi þeirra umsagna sem nefndinni hafa borist þykir rétt að taka fram að í 12. gr. laga nr. 93/1992, um meðferð sjávarafurða og eftirlit með framleiðslu þeirra, var kveðið á um það að eldisfiski mætti aðeins slátra með leyfi yfirdýralæknis og samkvæmt þeim skilmálum er hann setti. Eftirlitið samkvæmt lögunum var að öðru leyti hjá nýrri stofnun, Fiskistofu.

Lögunum var breytt og þau endurútgefin sem lög um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, nr. 55/1998, og kemur fram í almennum athugasemdum við frumvarpið að lögin skyldu ekki ná til eftirlits með slátrun eldisfisks þar sem slíkt eftirlit væri á valdsviði embættis yfirdýralæknis en ekki sjávarútvegsráðuneytis. Í athugasemdum við 14. gr. í III. kafla um leyfisveitingar og eftirlit kemur fram að Eftirlitsstofnun EFTA hafi gert athugasemdir við það að leyfi yfirdýralæknis þyrfti til slátrunar eldisfisks og hafi ákvæðið því verið fellt brott. Frá gildistöku laganna hefur því ekki verið skýrt kveðið á um ábyrgð og eftirlit með slátrun eldisfisks í lögum og er frumvarpinu ætlað að taka af öll tvímæli um það.

Á fundum nefndarinnar og í umsögnum hefur komið fram að sjávarútvegsráðuneyti og landbúnaðarráðuneyti hafi átt í viðræðum um verkaskiptingu eftirlitsaðila, þ.e. Fiskistofu og Aðfangaeftirlits, einkum varðandi eftirlit með fiskimjöli sem notað er í fóður en skilin milli ráðuneyta eru ekki nægjanlega skýr. Er stefnt að því að greiða úr því sem fyrst.

Með tilliti til þeirrar réttaróvissu sem skapaðist þegar mikill fjöldi eldislaxa slapp úr sláturkví seint á síðasta ári telur nefndin nauðsynlegt að ljúka afgreiðslu þessa máls sem fyrst og leggur til að frumvarpið verði samþykkt.

Hv. þm. Jón Bjarnason sat fundinn sem áheyrnarfulltrúi og er með fyrirvara við álit þetta.

Hv. þm. Jón Gunnarsson skrifar undir álitið með fyrirvara.

Hv. þm. Jóhann Ársælsson, Kristján L. Möller og Guðlaugur Þór Þórðarson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Undir nefndarálitið rita auk mín: hv. þm. Guðjón Hjörleifsson, Einar K. Guðfinnsson, Magnús Þór Hafsteinsson, Hjálmar Árnason og Jón Gunnarsson, með fyrirvara.

Þannig hljóðar nál. sjútvn. Eins og fram kemur er talið nauðsynlegt að taka af allan vafa um hvar eftirlit með slátrun eldisfisks liggur. Frumvarpið greiðir úr því álitamáli og þarf það ekki að vera óljóst eða ágreiningur um það héðan í frá ef þetta frumvarp verður að lögum.

Hins vegar er enn uppi ágreiningur á milli sjútvrn. og landbrn. um verkaskiptingu á milli Fiskistofu og Aðfangaeftirlits, sérstaklega hvað varðar fiskimjöl sem notað er í fóður. Úr því þarf að greiða sem fyrst. Það er álit sjútvn. að best fari á því að ráðuneytin reyni að koma sér saman um tillögur til Alþingis í þeim efnum. Vonast er til að úr því rætist fljótlega en að öðrum kosti verður Alþingi að taka af skarið til að greiða úr þessu atriði sem enn er óljóst.

Ég vil taka fram, varðandi eftirlit með fiskimjöli í fóður, að það hefur lengst af verið á verksviði landbúnaðarráðuneytisins og erlendis tilheyrir það því ráðuneyti. Það er hin almenna regla sem menn geta stuðst við til leiðsagnar við úrlausn á þessu máli.

Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi ekki fleiri orð um þetta nál. og það sem í frumvarpinu er og láti lokið framsögu minni.